Hérna geta foreldrar fundið upplýsingar sem viðkoma tannheilsu. Hvað skal gera þegar slys ber að höndum? Hvar starfa barnatannlæknar í þínu bæjarfélagi? Þessum spurningum er leitast við að svara hér á síðunni.
Síðan er líka hugsuð fyrir börnin - hér er að finna leiki sem miða að tannfræðslu, teiknimyndir og skjámyndir sem hægt er að setja á heimilistölvuna. Foreldrar geta að sjálfsögðu notið þess að sökkva sér í ævintýraheim Tuma Tannbursta með börnunum sínum!
Tumi Tannbursti býður ykkur velkomin og vonar að þið hafið gagn og gaman af síðunni!